Fara beint í efni

Við veitum ráðgjöf, smíðum vefsíður og þróum hugbúnað sem passar við þínar þarfir. Við kynnum okkur reksturinn, finnum hvar tæknin getur hjálpað og vinnum með þér að lausninni.

Þjónusta

Hvað getum við leyst fyrir þig?

Þú þarft ekki að vera með tilbúna tæknilýsingu. Segðu okkur hvað tekur of mikinn tíma, hvað flækir vinnuna eða hvað þig langar að gera betur. Við hjálpum þér að finna leiðina áfram.

  1. Ráðgjöf og sérlausnir

    Nýr hugbúnaður, tenging milli kerfa eða sjálfvirknivæðing á vinnu sem er enn unnin handvirkt.

  2. Vefsíður og veflausnir

    Vefsíður sem kynna fyrirtækið skýrt og auðvelda viðskiptavinum að nýta þjónustuna.

  3. Gervigreind í rekstri

    Við finnum hvar gervigreind nýtist og innleiðum hana í daglega vinnu. Við nýtum hana líka sjálf.

  4. Aðgangskerfi og bókanir

    Sérþekking frá stofnun Kode. Við tengjum saman kerfi og aðlögum lausnir að rekstrinum.

Golfsvítan · Keilir · Mulligan Golf

Bókunarkerfi aðlagað að þínum rekstri

Golfsvítan þurfti bókunarkerfi og Entrify var góður grunnur að lausninni. Í upphafi uppfyllti kerfið ekki allar þeirra kröfur. Við unnum því náið með þeim og aðlöguðum Entrify að þeirra þörfum og rekstrarfyrirkomulagi.

Þannig vinnum við hjá Kode. Við kynnum okkur verkefnið, hlustum á fólkið sem notar lausnina og þróum hana í samstarfi við það.

Bókun hjá Keili í síma
Golfsvítan í síma
Bókun hjá Mulligan Golf í síma

Fleiri verkefni

Breiddin í verkefnunum

Öll verkefni

Sérlausn · Gervigreind

Gamalt kerfi endurgert á einni viku

Þörfin
Eldra kerfi sem flækti daglega vinnu starfsfólks.
Hvað Kode gerði
Endurgerði kerfið með aðstoð gervigreindar á einni viku.
Ávinningurinn
Skilvirkari vinna og töluvert minni hausverkur.
Forsíða skralli.is

Vefsíður · Vöruleit

Skralli og Elba

Þörfin
Skralli selur smurkerfi og rekur líka vef norska fyrirtækisins Elba. Vefir beggja voru í Framer og þau vildu geta byggt meira ofan á þá.
Hvað Kode gerði
Endurgerði skralli.is og elba.no í eigin kóða, tengdi snertiformin, smíðaði vöruleit fyrir Elba og vinnur nú að tengingu við bókhaldskerfið DK.
Ávinningurinn
Einn grunnur fyrir báða vefina, sem hægt er að þróa áfram, með vöruleit og formum sem virka.
Forsíða fasteignarettur.is

Vefsíða · Vefumsjón

Fasteignaréttur

Þörfin
Lögmannsstofan Fides vildi upplýsingavef um fasteignarétt þar sem hún gæti sjálf skrifað og uppfært fræðsluefni.
Hvað Kode gerði
Forritaði vefinn frá grunni, tengdi hann við vefumsjónarkerfið Prismic og vann textana með stofunni á prufusíðu áður en vefurinn fór í loftið. Kode hýsir og vaktar vefinn.
Ávinningurinn
Stofan uppfærir greinarnar sjálf og Kode sér um að vefurinn haldist uppi.

Okkar eigin lausn

Entrify. Bókunarkerfi sem við aðlögum að þér.

Entrify er okkar eigin lausn fyrir bókanir, greiðslur og aðgangsstýringu. Við getum aðlagað kerfið að þínum rekstri, þínum þörfum og því hvernig þú vilt þjónusta viðskiptavinina þína.

Veldu tíma · Hermir 2Lau 4. okt

16:0017:0018:0019:0020:0021:0022:0023:00
Viðskiptavinur velur tíma · sýnidæmi
Stjórnborð Entrify með sýnigögnum

StjórnborðiðBókanir, áskriftir og gjafabréf á einum stað

Fólkið á bak við Kode

Þrír skólafélagar með áhuga á að leysa vandamál.

Við kynntumst í Tækniskólanum og stofnuðum Kode á fyrsta ári okkar í Háskólanum í Reykjavík. Fyrirtækið varð til í kringum lausn fyrir Vernd fangahjálp. Síðan höfum við hjálpað fyrirtækjum í ólíkum greinum að einfalda reksturinn með hugbúnaði.

Kynntu þér Kode

Mynd af stofnendum væntanleg

Hafa samband

Ertu með hausverk í rekstrinum?

Segðu okkur hvað þú ert að glíma við. Við skoðum það með þér og finnum hvernig við getum hjálpað.

Hafa samband