Þjónusta
Þú þarft ekki að vera með tilbúna tæknilýsingu. Segðu okkur hvað tekur of mikinn tíma, hvað flækir vinnuna eða hvað þig langar að gera betur. Við hjálpum þér að finna leiðina áfram.
Hvað getum við leyst fyrir þig?
Ráðgjöf og sérlausnir
Við greinum þarfirnar með þér og þróum lausnir utan um verkefnin sem þú þarft að sinna. Það getur verið nýr hugbúnaður, tenging milli kerfa eða sjálfvirknivæðing á vinnu sem er enn unnin handvirkt.
Vefsíður og veflausnir
Við hönnum og smíðum vefsíður sem kynna fyrirtækið þitt skýrt og auðvelda viðskiptavinum að nýta þjónustuna. Þegar þú þarft meiri virkni þróum við hana með þér.
Gervigreind í rekstri
Við hjálpum þér að finna hvar gervigreind getur nýst í rekstrinum og innleiða hana í daglega vinnu. Við nýtum hana líka sjálf við þróun og úrlausn verkefna. Sú þekking hjálpar okkur að stytta vinnslutíma og lækka kostnað fyrir viðskiptavini okkar.
Lesa söguna um kerfið sem var endurgert á einni vikuAðgangskerfi og bókanir
Við erum sérfræðingar í aðgangskerfum og höfum unnið með aðgangsstýringar og bókanir frá stofnun Kode. Við tengjum saman kerfi og aðlögum lausnir að því hvernig reksturinn þinn virkar.
Hafa samband
Ertu með hausverk í rekstrinum?
Segðu okkur hvað þú ert að glíma við. Við skoðum það með þér og finnum hvernig við getum hjálpað.
Hafa samband