Fara beint í efni

Verkefni

Hvert verkefni byrjar á þörf. Hér sérðu hvað við gerðum og hvað varð auðveldara.

Verkefnin okkar

Forsíða Golfsvítunnar

Bókunarkerfi · Entrify

Bókunarkerfi aðlagað að rekstrinum

Þörfin
Golfsvítan þurfti bókunarkerfi. Entrify var góður grunnur, en í upphafi uppfyllti kerfið ekki allar kröfur hennar.
Hvað Kode gerði
Við unnum náið með Golfsvítunni og aðlöguðum Entrify að þörfum hennar og rekstrarfyrirkomulagi.
Ávinningurinn
Bókunarkerfi sem fylgir því hvernig Golfsvítan starfar.

Sérlausn · Gervigreind

Gamalt kerfi endurgert á einni viku

Þörfin
Eldra kerfi sem flækti daglega vinnu starfsfólks.
Hvað Kode gerði
Endurgerði kerfið með aðstoð gervigreindar á einni viku.
Ávinningurinn
Skilvirkari vinna og töluvert minni hausverkur.
Forsíða skralli.is

Vefsíður · Vöruleit

Skralli og Elba

Þörfin
Skralli selur smurkerfi og rekur líka vef norska fyrirtækisins Elba. Vefir beggja voru í Framer og þau vildu geta byggt meira ofan á þá.
Hvað Kode gerði
Endurgerði skralli.is og elba.no í eigin kóða, tengdi snertiformin, smíðaði vöruleit fyrir Elba og vinnur nú að tengingu við bókhaldskerfið DK.
Ávinningurinn
Einn grunnur fyrir báða vefina, sem hægt er að þróa áfram, með vöruleit og formum sem virka.
Forsíða fasteignarettur.is

Vefsíða · Vefumsjón

Fasteignaréttur

Þörfin
Lögmannsstofan Fides vildi upplýsingavef um fasteignarétt þar sem hún gæti sjálf skrifað og uppfært fræðsluefni.
Hvað Kode gerði
Forritaði vefinn frá grunni, tengdi hann við vefumsjónarkerfið Prismic og vann textana með stofunni á prufusíðu áður en vefurinn fór í loftið. Kode hýsir og vaktar vefinn.
Ávinningurinn
Stofan uppfærir greinarnar sjálf og Kode sér um að vefurinn haldist uppi.

Hafa samband

Ertu með hausverk í rekstrinum?

Segðu okkur hvað þú ert að glíma við. Við skoðum það með þér og finnum hvernig við getum hjálpað.

Hafa samband