Fara beint í efni

Um okkur

Við kynntumst í Tækniskólanum og héldum síðan allir þrír áfram í Háskólann í Reykjavík. Á fyrsta árinu í HR stofnuðum við Kode í kringum lausn sem við höfðum unnið að fyrir Vernd fangahjálp.

Þar byrjaði sagan okkar: á raunverulegri þörf og tækifæri til að leysa hana með hugbúnaði. Í HR fengum við síðan tækifæri til að halda þróunarvinnunni áfram og þróuðum áskriftarlausn fyrir íslenskan markað.

Aðgangsstýringar og bókanir hafa fylgt okkur frá upphafi og á því sviði höfum við byggt upp sérþekkingu. Verkefnin hafa síðan orðið fjölbreyttari og í dag vinnum við með fyrirtækjum í ólíkum greinum, allt frá fyrirtækjum sem setja upp smurkerfi til rekstraraðila í golfgeiranum.

Við byrjum á að skilja reksturinn þinn.

Góð lausn byrjar á góðu samtali. Við viljum vita hvernig þú vinnur, hvað gengur vel og hvar hlutirnir flækjast. Þess vegna vinnum við náið með viðskiptavinum okkar, frá fyrstu hugmynd að lausn í notkun.

Þú mátt koma til okkar með hausverkinn. Við hjálpum þér að greina vandann og tökum að okkur að þróa lausnina.

Forvitnin skilar sér til viðskiptavina okkar.

Við höfum alltaf haft opinn huga fyrir nýrri tækni og lagt okkur fram um að læra að nýta hana. Þannig höfum við hjálpað fyrirtækjum að sjálfvirknivæða verkefni og spara margar vinnustundir.

Í dag er gervigreind stór hluti af vinnunni okkar. Þekking á henni gerir okkur kleift að vinna ákveðin verkefni mun hraðar en áður og sá ávinningur skilar sér til viðskiptavina okkar í styttri vinnslutíma og lægri kostnaði.

Nafnið Kode Solutions lýsir því vel sem við gerum. Við forritum lausnir fyrir þig.

Hafa samband

Ertu með hausverk í rekstrinum?

Segðu okkur hvað þú ert að glíma við. Við skoðum það með þér og finnum hvernig við getum hjálpað.

Hafa samband